Eldhúsið
Matreiðslumeistarar Hraðlestarinnar tryggja að hver réttur er eldaður af ástríðu, nákvæmni og virðingu fyrir hráefnum og hefðum.
Meistarar í indverskri matargerð
Madaiah Kalaiah
Madaiah er fæddur og uppalinn í Hassan á Suður-Indlandi. Ástríða hans fyrir mat kviknaði á unga aldri. Fyrst lærði hann matargerð heimaslóðanna; bragðheim suðursins með sínum rótgrónu hefðum. Síðar stundaði hann nám við virtan matreiðsluskóla þar sem hann fullkomnaði sína tæknilegu færni. Madaiah lauk þjálfun sinni í Hassan undir leiðsögn fyrrum yfirkokks Hraðlestarinnar, Lakshman Rao.
Madaiah kom til Íslands haustið 1995, rétt á eftir Lakshman og eldaði við hlið hans á Austur-Indíafjelaginu í áratug. Saman stóðu þeir fyrstu vaktina í eldhúsi Hraðlestarinnar við opnun árið 2003. Allar götur síðan hefur hann töfrað fram sérrétti Hraðlestarinnar og fært Íslendingum heiðarlegan og ekta indverskan mat - ávallt með bros á vör. Þar að auki er hann helsti krikket unnandi Hraðlestarinnar og hefur eldað fyrir sinn uppáhalds leikmann, Sachin Tendulkar, á ferðalagi hans til landsins.
Prakash Singh
Prakash Singh er frá hæðum Himalaya fjallanna í Uttaranchal á norður Indlandi. Hann sérhæfir sig í Tandoori-matreiðslu og ríkulegum réttum norðursins. Í garði æskuheimils Prakash stóð Tandoori-ofn þar sem hann lærði hina fornu list af afa sínum.
Seinna meir varði Prakash mörgum árum í Delhi og síðar á Suður-Indlandi þar sem hann eldaði rétti norðursins á ýmsum fimm stjörnu hótelum. Prakash byrjaði að framreiða rétti að hætti afa síns á Hraðlestinni árið 2007 og er hann helsti sérfræðingur okkar í kjötréttum.
Biju George
Biju George er fæddur og uppalinn í hlýrri hafgolu á strandlengju Kerala, sunnanverðu Indlandi. Fylkið er oft kallað Kryddgarður Indlands og er svæðið þekkt fyrir helstu kryddakra og mörg fremstu veitingahús Indlands. Frá unga aldri lærði Biju kúnstina að blanda kryddum eftir ævafornum hefðum Ayurveda, þar sem bragð og heilsa eru höfð að leiðarljósi.
Frá 2013 hefur Biju nýtt þessa kunnáttu í eldhúsi Hraðlestarinnar og skapað fjölmarga rétti sem gestir Hraðlestarinnar þekkja og elska. Þar að auki sér Biju um að kryddblöndur Hraðlestarinnar séu ávallt ferskar, bragðmiklar og í fullkomnu jafnvægi.
Sathish Kumar
Sathish Kumar er ástríðukokkur frá Chennai í Tamil Nadu. Þar ólst hann upp og fann síðar köllun sína í eldhúsum fimm stjörnu hótela borgarinnar. Sathish hefur óbilandi áhuga á matargerð og sækir innblástur ekki aðeins til Indlands heldur einnig til annarra menningarheima. Hann finnur fegurðina jafnt í einföldum götubitum sem í vönduðum fimm stjörnu réttum. Sathish veit fátt betra en ferskan íslenskan fisk eldaðan að hætti Chennai-búa.
Frá árinu 2022 hefur Sathish leikið listir sínar á Hraðlestinni og leiðir tilraunaeldhúsið á Grandanum.
Jone Joseph
Jone Joseph er fæddur í Kanyakumari á syðsta odda Indlands. Hann fékk ungur áhuga á eldamennsku frá ömmu sinni sem eldaði af ástúð og töfraði fram brögð sem glöddu ungan mataráhugamann. Eftirlætis máltíð Jone Joseph er látlaust Desi Chicken Curry og Tawa Paratha að hætti ömmu. Jone Joseph hefur unnið sem stjörnukokkur víðsvegar um Indland og í Dubai, hvar hann eldaði fyrir konungsfjölskylduna.
Jone Joseph er brunnur fróðleiks um indverska matargerð og þekkir bæði sígildar og nýstárlegar aðferðir. Þessa þekkingu hefur hann auðgað Hraðlestina með frá því að hann gekk í liðið í lok árs 2023.
Lakshman Rao - Chef Emeritus
Lakshman Rao fæddist í Maharashtra-fylki og gegndi ýmsum stöðum á mörgum frægustu veitingahúsum Indlands. Lakshman ferðast vítt og breitt um Indland til að læra matarlist hinna ýmsu héraða. Á starfsferli sínum framreiddi hann mat fyrir meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar, þjóðarleiðtoga og matarunnendur hvaðanæva að.
Lakshman Rao flutti til Íslands í janúar 1995 og vann fyrst í eldhúsi Austur-Indíafjelagsins. Átta árum síðar var dótturfyrirtækið Hraðlestin stofnað og varð Lakshman yfirkokkur þess. Hann stýrði eldhúsi Hraðlestarinnar við góðan orðstír um árabil, en hefur nú lagt svuntuna á hilluna.