Sækja um starf
Vilt þú slást í hópinn? Stökktu um borð! Við tökum við umsóknum allt árið um kring.
Það sem við bjóðum
Hraðlestin er fjölskyldurekið fyrirtæki með ástríðu fyrir indverskri matargerð og góðri þjónustu. Við leggjum áherslu á hlýtt viðmót og skemmtilegt andrúmsloft, bæði fyrir gesti og starfsfólk. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur fólks sem deilir sameiginlegri trú á að góð orka, samvinna og virðing skapi besta upplifunina.
Sveiganlegur vinnutími
Við bjóðum upp á vaktir sem henta mismunandi lífsstíl, hvort sem þú ert í námi, á milli verkefna eða leitar að fullu starfi.
Tækifæri til vaxtar
Hjá Hraðlestinni færðu tækifæri til að vaxa í starfi, taka ábyrgð og byggja þína eigin vegferð áfram.
Gott starfsumhverfi
Við erum fjölbreyttur hópur sem leggur áherslu á samvinnu, jákvætt viðmót og virðingu.
Frábær matur
Við elskum að borða vel. Allir starfsmenn fá heitan, indverskan staffamat sem er eldaður af ástríðu og ferskum hráefnum.
Sækja um starf
Vinsamlegast fylltu út formið.