Hverfisgata
Á vordögum ársins 2003 opnaði Hraðlestin dyrnar í fyrsta sinn í litlu timburhúsi að Hverfisgötu 64a. Þar hafa dyrnar staðið opnar fyrir gestum síðan. Staðsetningin var og er í kallfæri frá Austur-Indíafjelaginu, veitingahúsinu sem kalla má eldri systur Hraðlestarinnar. Stofnendur Austur-Indíafjelagsins, hjónin Chandrika og Gunnar Gunnarsson, stóðu að baki nýja veitingahúsinu ásamt rekstarstjóranum Miroslav ‘Bato’ Manojlovic.
Í fyrstu var Hraðlestinni - þá Austurlandahraðlestinni - ætlað að verða eins konar „take away“ útgáfa af Austur-Indíafjelaginu og létta á álaginu sem var á síðarnefnda veitingahúsinu. Hraðlestin hefur síðan skapað sitt eigið orðspor og verið leiðandi í indverskum „take away“ mat á Íslandi.